Bloggleti.....

..... hrjáir mig tessa dagana en rakst á tessa frétt og vard ad bæta henni vid....

Skortur á kynlífslöngun hrjáir æ fleiri danska karla....

Sífellt fleiri karlmenn leita sér aðstoðar í Danmörku vegna skorts á kynlífslöngun, samkvæmt upplýsingum Ellids Kristensen, yfirlæknis Sexologisk Klinik á danska Ríkisspítalanum. Vandinn er algengari meðal kvenna en á undanförnum fimm til tíu árum hefur hans orðið vart í vaxandi mæli bæði meðal kvenna og karla. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

"Þetta tengist að hluta til nútímasamfélaginu. Karlar eru undir miklu álagi. Það er streita innan fjölskyldunnar, kynjahlutverkin eru óljós og það leiðir til daglegra umræðna um það hver eigi að sinna hvaða verki. Allt stuðlar þetta að því að sífellt fleiri karlmenn finna fyrir löngunarskorti," segir Kristensen.

Þá segir hún að karlar geti ekki lengur skilgreint kynlífsvanda sinn sem ristruflanir þar sem komin séu á markað áhrifarík lyf gegn slíku. Þeir verði því að viðurkenna að vandinn sé annar.

vandamal

"Kynjahlutverkin hafa breyst þannig og nú eru konurnar sterkari og karlarnir mýkri og varkárari. Þetta hefur svipt þá karlmennsku sinni og þori til að segja konunni að þá langi í hana," segir kynlífsfræðingurinn Josefine Eiby. "Við konurnar þurfum að muna að það skilar sér í betra kynlífi sleppum við aðeins stjórninni."

Um þriðjungur þeirra sem leita sér aðstoðar hjá deildinni vegna löngunarskorts eru nú karlar en fyrir fimm til tíu árum voru það nær eingöngu konur sem leituðu sér aðstoðar vegna slíkra vandamála.

 

Er tad semsagt málid ad halda sig vid íslendingana eda ad adstoda danina vid tetta vandamál ? Mér er spurn....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nina Kristjansdottir
Nina Kristjansdottir

Tónlistarspilari

Arcade Fire - Intervention

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 855

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband