Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Hef sagt þetta allan tímann......

Sá aðili sem að laug því að öllum íslendingum að Danir væru ligeglad fær það aldeilis í hausinn núna..... Að mínu mati eru Danir einhver rúðustrikaðasta og ferkantaða fólk sem að ég þekki og því hæstánægð að hafa rekist á þessa frétt á mbl.is
 

Danir sjá sjálfa sig í röngu ljósi

 

Danir eru vel liðnir og glaðlyndir og kímnigáfa þeirra rómuð um allan heim, þessu trúa Danir um sjálfa sig samkvæmt nýrri könnun, en Evrópubúar er þó ekki allsendis sammála þessari skoðun Dana. Aðeins 3% Evrópubúa segja Dani kurteisustu þjóð Evrópu. Þetta kemur fram á vefmiðli danska blaðsins Berlingske Tidende.

Þetta kemur fram í könnun sem evrópska útgáfa bandaríska blaðsins Wall Street Journal gerði um skoðun 21 Evrópuþjóðar á sjálfum sér og öðrum.

Danir eru víðast lágt á lista yfir þær þjóðir sem besta orðsporið fer af, sem helgast hugsanlega af því að landið er lítið og jafnvel óþekkt í S- og A-evrópu, en mesta athygli vekur að þeir virðast lítið vinsælli hjá nágrannaþjóðunum. Aðeins 4% Þjóðverja segja Dani kurteisustu þjóð Evrópu, og jafnhátt hlutfall Svía.

Frændur okkar geta þó huggað sig við það að nær engir telja þá sérstaklega ókurteisa, þar eru Svíar þó undantekninr, en 4% þeirra telja Dani ókurteisustu þjóð Evrópu.

 
 Og hana nú !!!!
 
En Danmörk er samt yndisleg   :=)
 
Allavegana byrja að blogga af krafti aftur þegar að ég kem heim 2 janúar..... 
 

Ritstifla i gangi.....

 

En langar ad deila tvi med ykkur ad eg og Stebbi asamt um 12 ødrum islendingum, erum a leid til Tyskalands i januar a HM i handbolta og erum vid svaka spennt. Buin ad panta hotel og erum ad safna fyrir bjornum sem ad, okkur til mikillar anægju er ekki dyr i Germany !!!!

Áfram Ísland !!!

islenski


Höfundur

Nina Kristjansdottir
Nina Kristjansdottir

Tónlistarspilari

Arcade Fire - Intervention

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 841

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband